Lætur af embætti ráðuneytisstjóra

Gissur Pétursson hefur að eigin ósk látið af embætti ráðuneytisstjóra.
Gissur Pétursson hefur að eigin ósk látið af embætti ráðuneytisstjóra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gissur Pétursson, ráðuneytisstjóri félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, hefur að eigin ósk látið af embætti ráðuneytisstjóra. Gissur mun starfa áfram sem sérfræðingur í ráðuneytinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins en þar segir einnig að félags- og húsnæðismálaráðherra, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Ásdís Halla Bragadóttir hafa gert með sér samkomulag um flutning Ásdísar Höllu í embætti ráðuneytisstjóra félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins en heiti þess verður breytt í félags- og húsnæðismálaráðuneyti 1. mars nk.

Ásdís Halla var skipuð í embætti ráðuneytisstjóra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins 2022.

Þá hefur náðst samkomulag milli menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, atvinnuvegaráðherra og Sigrúnar Brynju Einarsdóttur um flutning Sigrúnar Brynju í embætti ráðuneytisstjóra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins en heiti ráðuneytisins verður breytt í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti 1. mars nk.

Sigrún Brynja var skipuð í embætti ráðuneytisstjóra menningar- og viðskiptaráðuneytisins 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert