MDE tekur fyrir mál Gráa hersins

Fulltrúar Gráa hersins í héraðsdómi í desember 2021. Hæstiréttur hefur …
Fulltrúar Gráa hersins í héraðsdómi í desember 2021. Hæstiréttur hefur staðfest sýknudóm héraðsdóms. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur tilkynnt að hann muni taka til efnismeðferðar mál Gráa hersins og þriggja ellilífeyrisþega gegn íslenska ríkinu í skerðingamáli sem Grái herinn taldi brjóta á stjórnarskrárvörðum eignarrétti lífeyristaka.

Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í nóvember árið 2022, en hann féll ríkinu í vil. Í kjölfarið tilkynntu forsvarsmenn Gráa hersins að þau ætluðu með málið fyrir MDE og hefur dómstóllinn nú samþykkt að taka það fyrir.

Máls­höfðunin var reist á því sjón­ar­miði að með skerðingu op­in­berra líf­eyr­is­greiðslna í hlut­falli við rétt­indi, sem elli­líf­eyr­istak­ar hafa áunnið sér í líf­eyr­is­sjóðum með vinnu­fram­lagi sínu og iðgjöld­um, sé gengið gegn stjórn­ar­skrár­vörðum eign­ar­rétti líf­eyr­istaka. Taldi Grái her­inn að skerðing­in nemi allt að 56,9% af greiðslum úr líf­eyr­is­sjóði.

Ekki ólög­mæt mis­mun­un og ekki sýnt að eigna­rétt­indi hafi verið skert

Taldi Hæstirétt­ur í máli eins þeirra að skerðing­arn­ar hafi hvílt á mál­efna­leg­um sjón­ar­miðum, séu al­menn­ar og geri ekki slík­an grein­ar­mun á ein­stak­ling­um að þær feli í sér ólög­mæta mis­mun­un, and­stætt fyr­ir­mæl­um 62. gr. stjórn­ar­skrár­inn­ar. 

Þá taldi Hæstiréttur að Grái her­inn hafi ekki sýnt fram á að með fyr­ir­mæl­um laga um líf­eyr­is­rétt­indi hans sem njóta vernd­ar eigna­rétt­ar­á­kvæðis­ins hafi verið skert eða tak­mörkuð auk þess sem lög frá 2016 um al­manna­trygg­ing­ar og lög frá 2017 um al­manna­trygg­ing­ar hafi í engu til­liti breytt greiðslum ein­stak­ling­anna úr líf­eyr­is­sjóðum sam­kvæmt rétt­ind­um sem hann hefði áunnið sér á grund­velli iðgjalda.

Umfjöllun MDE verður afmörkuð um ákveðin álitaefni

Í tilkynningu frá Gráa hernum kemur fram að MDE muni afmarka umfjöllun sína við nánar tilgreind álitaefni, þ.e. hvort skerðingarreglurnar frá 2017/'18 hafi mismunað ellilífeyristökum eftir því hvort lífeyrisréttindi þeirra voru í séreignar- eða sameignarsjóðum; og/eða með því að ákvarða frítekjumark þeirra sem enn höfðu atvinnutekjur miklu hærra en þeirra sem eingöngu fengu greitt úr lífeyrissjóðum.

Þá segir einnig að dómstóllinn hafi veitt ríkinu til 11. mars til að leita sátta í málinu. Náist ekki sátt fyrir þann tíma fær ríkið 12 vikna frest til að skila inn greinargerð um málið. Í framhaldinu fær svo Grái herinn frest til að skila greinargerð af sinni hálfu.

Segir Grái herinn það vera áfangasigur að fá málið fyrir MDE, en minni hluti mála sem þangað berast fá efnismeðferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert