Það var mikil gleði í Gufunesbæ í Grafarvogi í gærkvöldi þegar íbúar kvöddu jólin.
Fjöldi kom saman við brennuna og fylgdist svo með glæsilegri flugeldasýningu. Langleggur og Skjóða stigu á svið og jólasveinarnir komu við á leið sinni aftur heim til fjalla.