Mál Distu og ÁTVR til skoðunar í ráðuneytinu

Daði Már Kristófers­son, fjár­mála- og efna­hags­ráðherra.
Daði Már Kristófers­son, fjár­mála- og efna­hags­ráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að mál víninnflytjandans Distu og ÁTVR sé til skoðunar hjá ráðuneytinu.

Dista bíður enn eft­ir því að ÁTVR bregðist við dómi Hæsta­rétt­ar sem skar úr um það í byrj­un des­em­ber að ÁTVR hefði brotið lög þegar hún tók tvær bjór­teg­und­ir frá Distu úr sölu.

Bjór­inn er enn ekki kom­inn aft­ur í hill­ur Vín­búðanna og lögmaður Distu seg­ir að ÁTVR hafi ekki sýnt frum­kvæði að því að rétta hlut Distu í kjöl­far dóms­ins.

Finnst þér eðlilegt að ÁTVR sé ekki búið að bregðast við dómi hæstaréttar?

„Við erum með þetta mál til meðferðar í ráðuneytinu, það er í vinnslu. Ég tjái mig ekki um einstök mál sem koma inn í ráðuneytið – einstök úrskurðarmál varðandi einstaka aðila fyrr en niðurstaðan liggur fyrir,“ segir Daði í samtali við mbl.is að ríkisstjórnarfundi loknum í morgun. 

Eftirspurn eina viðmiðið

Hæstirétt­ur felldi úr gildi þann 4. des­em­ber ákv­arðanir ÁTVR um að taka bjór­inn úr sölu á grund­velli viðmiða um fram­legð.

Í dómn­um kom fram að eft­ir­spurn væri eina viðmiðið sem lög til­greindu við vöru­val. Reglu­gerð fjár­málaráðuneyt­is­ins um fram­legðarviðmið ættu enga stoð í lög­um.

Reyna að vinna málið hratt

Spurður hvort hann telji ríkið þurfa bæta tjón Distu ítrekar Daði að hann muni ekki tjá sig um málið fyrr en ráðuneytið hefur farið yfir málið.

„Við reynum að vinna þetta eins og hratt og mögulegt er,“ segir Daði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert