Þorbjörg: „Auðvitað algjörlega óboðleg staða“

Þorbjörg ræddi við mbl.is um stöðu fangelsismála.
Þorbjörg ræddi við mbl.is um stöðu fangelsismála. mbl.is/Eyþór

Dómsmálaráðherra hefur óskað eftir gögnum um hallarekstur Fangelsismálastofnunar en til stendur að fara í hagræðingaraðgerðir á borð við það að hægja á boðun fanga í afplánun. Í nútímasamfélagi er óboðlegt að menn afpláni ekki sína dóma.

Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við mbl.is.

80 millj­óna króna halli er á rekstri Fang­els­is­mála­stofn­un­ar og Birg­ir Jónas­son, sett­ur fang­els­is­mála­stjóri, kynnti í desember ýmsar hagræðingartillögur.

Meðal þeirra eru tillögur um að hægja á boðun nýrra fanga í afplán­un sem eru á boðun­arlista, sem eru um 700, og fækka um allt að sex stöðugild­i fanga­varða vegna fjár­skorts.

Hefur óskað eftir nánari gögnum

„Ég hef óskað eftir nánari upplýsingum um þessa tölu. Mér finnst í fljótu bragði að þessar tölur ættu ekki að kalla á svo róttækar aðgerðir. Þess vegna óskaði ég líka eftir gögnum um það hverjar tölurnar séu og hvað þetta þýðir,“ segir Þorbjörg.

Birg­ir sagði ekki ólík­legt að hagræðingin myndi hafa þau áhrif að dóm­ar muni í aukn­um mæli fyrn­ast. Fleiri glæpa­menn gætu því sloppið við afplán­un.

Óboðlegt að dómar fyrnist

„Mér finnst að í nútímasamfélagi sé það auðvitað algjörlega óboðleg staða að menn sem dæmdir hafa verið fyrir afbrot af dómstólum landsins afpláni ekki þá dóma. Sér í lagi ef ástæðan er sú að það eru yfirvöld sem ekki kalla þá inn til afplánunar. Þannig það er algjörlega markmið mitt sem dómsmálaráðherra að svo sé ekki,“ segir Þorbjörg.

Hún ætlar að skoða nánar fjárhag Fangelsismálastofnunar og sjá hvort að hægt sé að forðast of afdrifaríkar aðgerðir vegna hallarekstursins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert