Viðgerðir á Háteigskirkju fram í apríl

Starfsemi Háteigskirkju færist til á viðgerðartímanum.
Starfsemi Háteigskirkju færist til á viðgerðartímanum. Morgunblaðið/Ómar

Háteigskirkja fagnar 60 ára afmæli í ár og nú er unnið að viðgerðum á kirkjunni. „Við höfum verið að safna peningum fyrir því að taka kirkjuna í gegn. Þessi sókn eins og aðrar sóknir stendur alveg sjálf undir viðhaldi og það var komið að því að sinna þessu og við einsettum okkur að gera það á afmælisári kirkjunnar,“ segir Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur í Háteigskirkju.

Messuhald fellur niður í kirkjunni sjálfri frá og með deginum í dag og út allan marsmánuð meðan kirkjan verður máluð að innan. Kirkjan verður síðan máluð að utan á vordögum þegar veður er orðið skaplegt.

Jarðarfarir færast yfir í aðrar kirkjur á þessu tímabili segir Helga Soffía og bendir á að Fossvogskirkja sé nærtækur kostur. „Við þjónum sókninni þannig áfram og þótt athöfnin sé í annarri kirkju fylgir prestur, organisti og kór Háteigskirkju með.“ Hún segir að skírt verði áfram í veislusal safnaðarheimilisins, en ekki verði brúðkaup á þessu tímabili.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert