Eyjólfur Ármannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og oddviti Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, bjó í rúmlega hálft ár á Sauðárkróki árið 2001. Hann kveðst hafa gleymt þeirri staðreynd þegar hann sagði við mbl.is í gær að hann hefði aldrei búið í kjördæminu.
Þetta kemur fram í skilaboðum hans til blaðamanns.
mbl.is greindi frá því í gær að hann væri með lögheimili á afskekktum sveitabæ á Vestfjörðum í eigu móður hans og fjölskyldu. Enginn býr á bænum og hann sjálfur er búsettur í Reykjavík.
Hvað er langt síðan þú bjóst í Norðvesturkjördæmi?
„Ég hef ekki búið þar,“ sagði Eyjólfur í gær við mbl.is.
Eyjólfur sendi sjálfur leiðréttingu rétt fyrir miðnætti í gær.
„Ég hef búið í Norðvesturkjördæmi. Bjó á Sauðárkróki þegar ég var fulltrúi sýslumanns þar,“ skrifar hann.
Eyjólfur segir nú aðspurður að hann hafi búið á Sauðárkróki frá því í janúar til ágúst árið 2001.
Af hverju sagðir þú í viðtalinu að þú hefðir aldrei búið í Norðvesturkjördæmi?
„Ég bjó á Króknum 2001. Mundi það ekki,“
Eyjólfur er með skráð lögheimili að Hrafnabjörgum 1 í Lokinhamradal í Arnarfirði. Samkvæmt fasteignayfirliti Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eru þinglýstir eigendur móðir Eyjólfs og systir hennar.
Býrðu þar?
„Nei. Ég held ekki heimili. Það er tvenns konar. Annars vegar ertu með lögheimili í kjördæminu og heldur heimili og hins vegar eru þingmenn sem eru með lögheimili í kjördæminu og halda ekki heimili,“ sagði Eyjólfur í samtali við mbl.is í gær en hann kveðst búa á Flókagötu í Reykjavík.
Alþingismaður fyrir kjördæmi utan Reykjavíkurkjördæma og Suðvesturkjördæmis fær mánaðarlega greiddar 185.500 krónur í húsnæðis- og dvalarkostnað í samræmi við lög.
Eyjólfur fékk slíkar greiðslur á síðasta kjörtímabili eins og allir landsbyggðarþingmenn.
Haldi alþingismaður, sem á aðalheimili utan höfuðborgarsvæðis, annað heimili í Reykjavík getur hann óskað eftir að fá greitt álag, 40%, á þá fjárhæð, en Eyjólfur hefur ekki þegið slíkar greiðslur.
„Ég veit ekki til þess að ég sé að græða eina krónu aukalega í laun því ég er skráður í kjördæminu. Ég greiði hins vegar útsvar af launum mínum til míns kjördæmis en þar búa kjósendur mínir,“ skrifar Eyjólfur.