Ökumaðurinn ákærður fyrir manndráp af gáleysi

Slysið varð syðst á Ásvöllum við bifreiðastæði á milli Ásvallalaugar …
Slysið varð syðst á Ásvöllum við bifreiðastæði á milli Ásvallalaugar og íþróttahús Hauka. mbl.is/Kristinn

Ökumaður steypubíls er ók bíl á hinn átta ára gamla Ibra­him Shah Uz-Zam­an með þeim afleiðingum að hann lést hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. 

Þetta staðfestir Hildur Sunna Pálmadóttir, hjá ákærusviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, við mbl.is. 

Vísir sagði fyrst frá.  

Slysið varð 30. október 2023 þegar ökumaðurinn beygði inn á bílastæði á milli Ásvallarlaugar og íþróttahúss Hauka. Ók hann á Ibrahim sem var á hjóli með þeim afleiðingum að hann lést. 

Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa segir m.a. að beygjan hafi verið mistök og að sennilegt sé að ekkert stefnuljós hafi verið notað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert