Býður ráðherra að flytja úr Garðabæ í Árborg

Svo virðist vera sem formaður bæjarráðs Árborgar sé ekki ánægur …
Svo virðist vera sem formaður bæjarráðs Árborgar sé ekki ánægur með það að oddviti Suðurkjördæmis búi ekki í kjördæminu. Samsett mynd

Sveinn Ægir Birgisson, formaður bæjarráðs Árborgar, býður Ásthildi Lóu Þórsdóttur, oddvita Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, að flytja í Árborg sökum þess að hún býr ekki í kjördæminu.

mbl.is greindi frá því í gær að Ásthildur væri ekki búsett í Suðurkjördæmi og hefði aldrei á ævinni búið í kjördæminu. Flokkur fólksins var stærsti flokkurinn í kjördæminu í síðustu þingkosningum. 

„Ég er með lög­heim­ili í Garðabæ og hef aldrei búið í Suður­kjör­dæmi,“ skrif­aði Ásthild­ur Lóa, mennta- og barnamálaráðherra, í svari við fyr­ir­spurn mbl.is í gær.

Íbúar vilji að kjörnir fulltrúar þekki kjördæmið

Sveinn Ægir skrifar í færslu á facebook að íbúar Suðurkjördæmis þekki það vel hversu gott það er að búa í kjördæminu.

Eðli málsins samkvæmt vilji íbúar því að fulltrúar þeirra á Alþingi þekki fólkið og lífið í kjördæminu.

„Því langar mig að bjóða nýjum mennta- og barnamálaráðherra og fyrsta þingmanni Suðurkjördæmis velkomna til að flytja í Sveitarfélagið Árborg. Hér getur hún svo sannarlega fundið fyrir hjartslætti kjördæmisins og stofunum ráðuneytis síns,“ skrifar Sveinn. 

Helmingur oddvita Suðurkjördæmis ekki í kjördæminu

mbl.is hafði samband við landsbyggðarþingmenn í gær og kom í ljós að allnokkrir þingmenn búi ekki á eigin lögheimili í sínu kjördæmi eða eru jafnvel með lögheimili í öðru kjördæmi. 

Upp úr krafsinu kom að í Suðurkjördæmi eru til dæmis þrír af sex oddvitum ekki með lögheimili í kjördæminu. 

Víðir Reynisson, oddviti Samfylkingarinnar, er með lögheimili í Kópavogi, en fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum.

Halla Hrund Logadóttir, oddviti Framsóknar, er með lögheimili í Reykjavík en var í sveit hjá ömmu sinni og afa í Vest­ur-Skafta­fells­sýslu, nán­ast öll sum­ur og frí fram und­ir tví­tugt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert