Finnar sinna loftrýmisgæslu á Íslandi í fyrsta sinn

F/A-18 Hornet flugvélar finnska flughersins voru áður á Íslandi 2014, …
F/A-18 Hornet flugvélar finnska flughersins voru áður á Íslandi 2014, þegar þær tóku þátt í æfingum samhliða loftrýmisgæslu norska flughersins. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Flugsveit finnska flughersins er væntanleg til landsins í lok janúar, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin samanstendur af fjórum F/A-18 Hornet orrustuþotum og allt að 50 liðsmönnum. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins en þar segir að um sé að ræða fyrstu loftrýmisgæslu Finna á Íslandi eftir að þeir gengu í Atlantshafsbandalagið.

Flugsveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum stjórnstöðva Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. 

Markar mikilvæg tímamót

„Þátttaka Finna í loftrýmisgæslu á Íslandi markar mikilvæg tímamót og sýnir með áþreifanlegum hætti hvernig aðild þessarar norrænu vinaþjóðar Íslendinga að Atlantshafsbandalaginu styrkir og dýpkar varnarsamvinnu okkar og eykur öryggi Íslendinga,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.

Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. 

Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlandshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands.

Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í lok febrúar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert