Leitaði til læknis vegna áverka eftir eggvopn

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörg horn að líta í …
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörg horn að líta í gærkvöld og í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Maður leitaði til læknis vegna áverka eftir eggvopn í gærkvöld og er málið til rannsóknar hjá lögreglu.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun.

Lögreglan handtók mann sem grunaður er um líkamsárás, eignaspjöll og fjársvik. Hann var færður í fangageymslu.

Manni var vísað út úr fjölbýlishúsi eftir að hafa verið með ólæti og ógnandi hegðun og þá hafði lögreglan afskipti af manni í vímu að trufla starfsemi veitingastaðar.

Lögreglan handtók þrjá ökumenn sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum fíkniefna og þá var tilkynnt um þrjú umferðaróhöpp í miðborginni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert