Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokks segir kurr í flokksmönnum eftir rýr kosningaúrslit.
Hún játar að brotthvarf Bjarna Benediktssonar úr stjórnmálum hafi aukið þrýsting á Sigurð Inga Jóhannsson formann Framsóknar og segir kallað eftir því að flokksþingi verði flýtt. Miklu skipti að flokkurinn veiti öfluga stjórnarandstöðu og nái að byggja sig upp á ný.
Þetta kemur fram í þætti Dagmála, sem opinn er öllum áskrifendum. Þar ræðir Lilja ásamt Óla Birni Kárasyni um pólitíska arfleifð Bjarna, afrek sem mistök, en einnig um afleiðingar brotthvarfs hans fyrir eigin flokk og aðra.
„Það sem ég heyri í okkar fólki er að það vill fara yfir stöðuna. […] Formaðurinn hefur sagst vera að fara að tala við flokksmenn um allt land og ég veit að fólk hefur áhuga á að láta miðstjórnina koma saman og jafnvel flýta flokksþingi,“ segir Lilja.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag