Heimilisköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu

Tveir kettir hafa nú greinst með fuglaflensu hér á landi. …
Tveir kettir hafa nú greinst með fuglaflensu hér á landi. Myndin er úr safni. Ljósmynd/Þórður Arnar Þórðarson

Heimilisköttur á Seltjarnarnesi greindist í dag með skæða fuglaflensu. Talið er að hann hafi smitast af fuglshræi og hefur hann nú verið aflífaður. 

Í tilkynningu Matvælastofnunar segir að kötturinn hafi verið veikur og með svipuð einkenni og 10 vikna gamli kettlingurinn sem drapst sökum flensunnar fyrir jól.

Aðrir kettir eru á sama heimili og kötturinn sem greindist í dag og eru þeir frískir. Engin tenging er sögð á millli kattanna tveggja sem hafa greinst með fuglaflensu á Íslandi.

Þá bendir ekkert til þess að fuglaflensan smitist á milli katta, að því er fram kemur í tilkynningu MAST.

Koma í veg fyrir að kettir komist í snertingu við fugla

Töluvert margar tilkynningar hafa borist Matvælastofnun um dauða villta fugla að undanförnu, sérstaklega um grágæsir á höfuðborgarsvæðinu. Skæð fuglainflúensa H5N5 greindist í þessari viku í álftum og grágæsum.

Matvælastofnun mælir með að fólk reyni eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að kettir þeirra komist í snertingu við fugla.

Lítil smithætta fyrir fólk

Í tilkynningu MAST segir enn fremur að smithætta fyrir fólk af völdum fuglaflensunnar sé enn mjög lítil en er þó fólk minnt á að gæta hreinlætis í umgengni við dýr og umhirðu þeirra.

Finna má á vef embættis landlæknis almennar leiðbeiningar um fuglaflensu.

Tímabundnar varnaraðgerðir í gildi

Þá er mikið af gagnlegum upplýsingum á vef stofnunarinnar um fuglaflensu í dýrum og einnig mælaborð sem sýnir fjölda og staðsetningu villtra fugla sem sýni hafa verið tekin úr og niðurstöður rannsókna á þeim.

Einnig er minnt á að í gildi séu reglur um tímabundnar varnaraðgerðir til að fyrirbyggja að fuglaflensa berist í alifugla og fugla í haldi.

Ítrekar tilmæli til almennings

„Matvælastofnun ítrekar tilmæli til almennings um að tilkynna stofnuninni um villta fugla og villt spendýr sem finnast dauð, þegar ástæða dauða er ekki augljós. Það er best að gera með því að skrá ábendingu á heimasíðu Matvælastofnunar. Mikilvægt er að láta mynd fylgja tilkynningunni og gera vel grein fyrir staðsetningu, helst með því að skrá hnit,“ segir í tilkynningunni.

„Nánari upplýsingar eru á líka á síðu Matvælastofnunar um hvað fólk skuli gera ef það finnur veika eða dauða villta fugla eða villt spendýr. Þar er m.a. tekið fram að hræ skuli látin liggja nema ef þau eru þannig staðsett að nauðsynlegt sé að fjarlægja þau. Ef það er gert skal hræið sett í plastpoka, án þess að það sé snert með berum höndum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert