Inflúensan fyrr á ferðinni en vanalega

Þátttaka 60 ára og eldri í bólusetningum gegn inflúensu það …
Þátttaka 60 ára og eldri í bólusetningum gegn inflúensu það sem af er þessum vetri er nú um 45%. Ljósmynd/Colourbox

Færri greindust með inflúensu í fyrstu viku ársins samanborið við síðustu viku ársins 2024.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti landlæknis sem byggir á mælaborði sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar. 

Samtals greindust 35 með inflúensu í fyrstu viku ársins en þar af lágu 11 einstaklingar inni á Landspítala sem eru færri en á sama tímabili á síðasta ári.

Þeir sem greindust voru í öllum aldurshópum en níu einstaklingar voru í aldurshópnum 65 ára og eldri og fimm voru yngri en fimm ára.

Fyrr á ferðinni eða umfangsmeiri?

Ef tímabilið frá sumri og til loka árs 2024 er borið saman við fyrri ár má sjá að talsvert færri inflúensur greindust á þessu tímabili á árinu 2024 samanborið við sama tímabil árin 2022 og 2023, en á þeim árum greindust óvenju margir með inflúensu.

Faraldurinn virðist fara fyrr af stað í vetur með fleiri greiningar á tímabilinu fram að áramótum ef árin fyrir heimsfaraldur COVID-19 eru skoðuð, en hafa ber í huga að færri sýni voru tekin fyrir faraldurinn sem kann að skýra fjölgunina.

Á árunum fyrir heimsfaraldur Covid-19, greindist meirihluti inflúensutilfella eftir áramót svo í ljós á eftir að koma hvort núverandi inflúensufaraldur verði umfangsmeiri eða hvort hann sé einfaldlega fyrr á ferðinni og tilfellum fari þá einnig fækkandi fyrr.

Innlögnum vegna inflúensu og RS-veirusýkinga hefur fækkað frá því í …
Innlögnum vegna inflúensu og RS-veirusýkinga hefur fækkað frá því í lok síðasta árs. mbl.is/Jón Pétur

RS fer fækkandi

RS-veirusýkingum hefur farið fækkandi undanfarnar þrjár vikur en í fyrstu viku ársins greindust 48 með RS, þar af helmingur börn undir eins árs aldri.

Innlögnum á Landspítala vegna RS-veirusýkingar fækkaði einnig niður í ellefu, en þar af voru átta í aldurshópnum 65 ára og eldri og tvö börn undir eins árs aldri.

Sex einstaklingar greindust með COVID-19 en enginn lá á spítala vegna veirunnar til samanburðar við þá sex sem voru inniliggjandi með veiruna í síðustu viku ársins 2024.

Þátttaka í bólusettningum undir væntingum

Búast má við áframhaldandi inflúensu og RS-veirusýkingum næstu vikur og bendir embætti Landlæknis á að bólusetningar séu áhrifaríkasta vörnin gegn alvarlegum veikindum vegna öndunarfæraveirusýkinga.

Bólusetningar vegna Covid-19 og inflúensu eru enn í boði og einstaklingar eldri en 60 ára og aðrir einstaklingar í áhættuhópum eru hvattir til að þiggja bólusetningu en þessir hópar eru í mestri hættu á alvarlegum veikindum.

Þátttaka í bólusetningum hefur verið undir væntingum en þátttaka 60 ára og eldri í bólusetningum gegn inflúensu það sem af er þessum vetri er nú um 45%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert