Um 75% landsmanna horfðu á Áramótaskaup Sjónvarpsins á gamlárskvöld. Fjölmargir hafa auk þess horft á skaupið eftir ýmsum leiðum eftir að það var fyrst sent út, samkvæmt upplýsingum frá RÚV.
Áramótaskaupið er jafnan vinsælasti dagskrárliður ársins í sjónvarpi og sú virðist hafa verið raunin nú. Það að 75% landsmanna hafi setið við skjáinn á gamlárskvöld er þó síður en svo met því fyrir tveimur árum var áhorfið minnst 81% við frumsýningu skaupsins.
Fyrstu fimm dagana í janúar var Áramótaskaupið vinsælasti dagskrárliðurinn í spilara RÚV á heimasíðu þess og í snjallsjónvörpum. Þar var skaupið spilað 46 þúsund sinnum.
Vinsælast er skaupið sjálft en einnig er hægt að spila stök atriði og þar er lokalagið vinsælast. Upphafslag skaupsins kemur þar á eftir, þá Skólarapp, því næst atriði með eldfjallafræðingum og þar á eftir atriðið með hefðbundnu Hönnu.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag