Lind Völundardóttur, skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu, finnst þyngra en tárum taki að skólinn sé kominn í þá stöðu að henni sem skólameistara beri að gera hvað sem ráðuneytið og ráðgjafi á þess vegum leggur til.
Þetta kemur fram í tölvupósti sem Lind sendi starfsfólki skólans og mbl.is hefur undir höndum. Lind hefur gegnt stöðu skólameistara frá ágúst 2022 en fyrirrennari hennar var Eyjólfur Guðmundsson.
Olga Lísa Garðarsdóttir, fyrrverandi skólameistari Fjölbrautaskólans á Suðurlandi, hefur verið verkefnaráðin af menntamálaráðuneytinu til að rýna í rekstur skólans þar sem hún mun skoða skólann í heild sinni, eins og hún orðar það.
Fjárhagsvandræði skólans má rekja að miklu leyti til umfangsmikils og kostnaðarsams náms í fjallamennsku. Lind sagði í ágúst að verið væri að leita leiða til að hægt sé að bjóða upp á námið, sem myndu ekki bitna á nemendum eða náminu sem slíku sem er mikilvægt í ferðaþjónustu á Íslandi.
Í tölvupóstinum sem Lind sendi á starfsmenn skólans er meðal annars vísað í tilkynningu frá ráðuneytinu:
„Til að styðja við að fjárhagsstöðu FAS verði komið í lögmætt horf hefur mennta- og barnamálaráðuneytið fengið Olgu Lísu Garðarsdóttur, fyrrverandi skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurlands, til að vera sérstakur tengiliður ráðuneytisins við FAS í fjármálum.
Hlutverk Olgu Lísu er að rýna allar ákvarðanir skólans sem geta haft áhrif á rekstur og fjárhag og veita ráðgjöf til skólans. Lagt er fyrir þig sem skólameistara FAS, sbr. 15. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, að fylgja ráðgjöf Olgu Lísu og ráðuneytisins í hvívetna og fela starfsfólki skólans að gera hið sama.“