Stofnanir Framsóknarflokks bregðast við beiðni um að landsþing verði sem fyrst

Sigurður Ingi Jóhannsson á flokksþingi Framsóknar síðastliðið vor.
Sigurður Ingi Jóhannsson á flokksþingi Framsóknar síðastliðið vor. Ljósmynd/Framsókn

Hafið er nokkuð langt ferli stofnana Framsóknarflokksins til þess að efna mögulega til landsþings flokksins innan skamms.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Þingið myndi fjalla um útreið flokksins í nýliðnum kosningum, greina hvað fór úrskeiðis og ákveða hvernig bregðast skuli við.

Landsþing er æðsta vald í málefnum Framsóknarflokksins, mótar m.a. stefnu hans og kýs forystu hans.

Landsstjórn kölluð saman

Framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins ákvað í gær að verða við tilmælum kjördæmasambands flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur.

Hefur því landsstjórn flokksins verið kölluð saman, en hún mun eiga fund hinn 30. janúar til þess að boða fund hjá miðstjórn Framsóknarflokksins. Miðstjórnin mun svo fjalla um beiðni kjördæmissambandsins um að boða til landsþings flokksins fyrr en áskilið er.

Innan flokksins hafa heyrst raddir um að Sigurður Ingi Jóhannsson formaður þurfi að axla ábyrgð á kosningaósigrinum, en hann er á öðru máli.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert