Ríkissáttasemjari hefur gert ótímabundið hlé á viðræðum í kjaradeilu kennara við ríki og sveitarfélög. Enginn fundur er á dagskrá og verkföll hefjast að óbreyttu 1. febrúar.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir við mbl.is að enn sé langt milli aðila og að óbreyttu sé ekki efni til þess að sitja við kjarasamningsviðræður. Hann kveðst þó bjartsýnn um að deiluaðilar komist aftur að borðinu innan næstu 20 daga.
Deilan fjallar nú að sögn Ástráðs um hvernig hægt sé að finna úrlausn á kröfu kennara um að „jafna laun á milli markaða“ sem sé kjarni þeirrar deilu sem kennarar hafa átt um áraskeið. „Sú aðferðafræði sem hafði verið unnin eftir öll þau ár var ekki að gefa mikinn árangur,“ segir Ástráður.
Í lok nóvember ákvað sáttasemjari að prófa nýja leið í viðræðunum. Þá skrifuðu deiluaðilar undir rammasamkomulag um hvernig ætti að standa að frágangi kjarasamnings við Kennarasamband Íslands og vegferðina þangað. Þá var verkföllum frestað út janúar.
Þá voru einnig tryggð tvö atriði í samningnum sem kennarar lögðu áherslu á. Annars vegar að á árinu 2025 verði tekið skref í átt að jöfnun launa á milli markaða og launatöfluauki var fastsettur.
En það virðist ekki hafa skilað nægum árangri.
„Núna eftir áramótin hefur það komið á daginn smám saman að þrátt fyrir þetta er það þannig að enn er uppi ágreiningur um akkúrat þetta mál, jöfnun launa milli markaðar,“ segir hann.
Enn sé t.d. deilt um hvað skuli miða við þegar talað er um „jöfnun launa milli markaða“.
„Kennarar líta svo á að það sé eigi síður nauðsynlegt að gera breytingar á þeirra grunnkjörum á grundvöllum þeirrar aðferðar sem við höfum lengi reynt hér á Íslandi við að gera stórkostlegar breytingar á kjörum einstakra stétta, sem hefur að minnsta kosti gefist misjafnlega.“
Enn sé þó virk vinna í gangi við að finna lausn. Samningsaðilar fundi enn hver í sínu lagi við að finna lausn á þessari deilu.