Kölluð út á mesta forgangi

Báturinn var staddur afar nærri landi.
Báturinn var staddur afar nærri landi. Ljósmynd/Landsbjörg

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarboð frá litlum fiskibát fyrr í dag. Báturinn var staddur afar nærri landi, norðarlega í mynni Ólafsfjarðar og hafði fengið í skrúfuna.

Björgunarsveitin Tindar í Ólafsfirði og björgunarskipið Sigurvin á Siglufirði voru kölluð út á mesta forgangi. Um tíma leit út fyrir að bátinn myndi reka í strand. Aðgerðastjórn var virkjuð á Akureyri.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.

Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarmenn frá Tindum héldu út á tveimur björgunarþotum og komu taug um borð í bátinn. Skipverji hafði þá varpað akkeri sem náði haldi í botni þannig að ekki var lengur yfirvofandi hætta á strandi. Næst var báturinn um 280 metra frá landi.

Skömmu síðar kom björgunarskipið Sigurvin á vettvang og tók bátinn í tog og dró inn til hafnar á Ólafsfirði.

Ljósmynd/Landsbjörg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert