Agnar Már Másson
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar kynntu fyrir þingmönnum í gær þau mál sem tekin verða fyrir þegar vorþing verður sett, líklega í lok mánaðar.
Þingflokkar stjórnarflokkanna, Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, áttu sameiginlega vinnufund á Þingvöllum í gær. Þingmenn, ráðherrar og starfsmenn flokkanna tóku þátt í vinnufundinum.
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir að ráðherrar hafi kynnt fyrir þingmönnum og starfsmönnum þau þingmál sem tekin verði fyrir þegar þingið kemur saman, sem verði vonandi í lok mánaðar.
„Við í raun bara að fá kynningar frá ráðherrunum um hvaða mál þau hyggjast leggja fram á vorþingi. Og við vorum að gefa endurgjöf; hvað okkur þætti skipta máli og hvernig þetta lagðist í okkur, og bara að spyrja út í málin,“ segir Guðmundur Ari í samtali við mbl.is.
„Við vorum bara að stilla saman strengi,“ bætir þingmaðurinn við. Hann segir mikinn samhug ríkja um téð þingmál sem leggja á fram á vorþingi enda séu þau í anda stjórnarsáttmálans.
Guðmundur vill ekki gefa upp hver þau mál eru, þar sem þau eru enn í vinnslu. Þau komi þó fram í þingmálaskrá, sem er að venju kynnt í aðdraganda þingsetningarinnar. Hann vonar að þing verði sett í lok mánaðarins, en enn er beðið eftir því að Landskjörstjórn staðfesti niðurstöður kosninganna.
„Það styttist í þetta allt.“