Kallaði á lögreglu vegna farþega sem neitaði að borga

Leigubílstjóri þurfti aðstoð lögreglu.
Leigubílstjóri þurfti aðstoð lögreglu. mbl.is/Unnur Karen

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að aðstoða leigubílstjóra vegna farþega sem neitaði að greiða fargjald.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglu frá klukkan 5 í morgun til klukkan 17 í dag.

Tvær lögreglustöðvar sinntu hnupli úr mismunandi matvöruverslunum.  

Þá var ökumaður kærður fyrir að aka með skyggðar hliðarrúður. Auk þess var bifreið hans boðuð í skoðun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert