Fimm enn í haldi grunaðir um húsbrot og líkamsárás

Lög­reglu­menn sér­sveit­ar rík­is­lög­reglu­stjóra voru kallaðir út og stýrðu þeir hand­tök­um …
Lög­reglu­menn sér­sveit­ar rík­is­lög­reglu­stjóra voru kallaðir út og stýrðu þeir hand­tök­um á vett­vangi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fimm eru enn í haldi lögreglunnar á Akureyri en þeir voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar á Norðurlandi eystra ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra í heimahúsi í Glerárhverfinu á Akureyri í gær.

Rut Herner Konráðsdóttir, lögreglufulltrúi á Akureyri, segir í samtali við mbl.is að fimmmenningarnir séu grunaðir um húsbrot og líkamsárás gegn einum aðila en lögreglan vopnaðist og var nærliggjandi götum lokað á meðan ástand var tryggt. Lögreglumenn sérsveitar ríkislögreglustjóra voru kallaðir út og stýrðu þeir handtökum á vettvangi.

Hún segir að rannsóknin sé á frumstigi en miði vel. Skýrslutökur og yfirheyrslur eru hafnar af sakborningum og að sögn Rutar er enn verið að vinna að vettvangsrannsókn.

Fram kom í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra í gær að vopnum hafi verið beitt og að sögn Rutar liggur grunur um að það hafi verið höggvopn. Hún segir að aðilinn sem ráðist hafi verið á hafi hlotið áverka en hann sé ekki talinn alvarlega slasaður.

Liggur grunur um að skipulagða brotastarfsemi hafi verið að ræða?

„Nei, það er ekkert slíkt. Þetta virðist hafa verið eitthvað uppgjör milli aðila.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert