„Við viljum ekki fullyrða neitt fyrr en við höfum fengið þetta staðfest en þetta hegðar sér eins og tölvuárás,“ segir Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota á Íslandi.
Tölvukerfi Toyota og Bílanaust liggja niðri og er talið að árás hafi verið gerð á kerfin aðfaranótt mánudags.
Í samtali við blaðamann mbl.is segir Páll sérfræðinga hafa verið fengna inn til þess að vinna með tölvudeild Toyota um leið og vandinn uppgötvaðist í morgun.
Ekki liggi fyrir hvaða áhrif það kunni að hafa á starfsemina ef bilunin reynist vera árás eða af hvaða toga hún sé.
„Við ætlum að reyna að halda uppi eins eðlilegri starfsemi og við getum,“ segir Páll.
Símasamband við skiptiborð Toyota liggur niðri eins og er en hægt er að hafa samband í síma 693-3088 og 693-3080 og á vefspjalli á toyota.is sem virkar enn.