Lögreglan virkjar viðbragðsáætlun

Horft yfir Bárðarbungu úr lofti.
Horft yfir Bárðarbungu úr lofti. mbl.is/RAX

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur virkjað viðbragðsáætlun vegna aukinnar jarðskjálftavirkni í Bárðarbungu í morgun. Þá verður aðgerðastjórn opnuð á Húsavík á milli klukkan átta og tólf næstu daga.

Áætlunin varðar mögulegt eldgos í Bárðarbungu eða norðan Vatnajökuls.

„Áætlunin er virkjuð á óvissustigi og hafa viðbragðsaðilar fengið boðun í gegnum neyðarlínuna í samræmi við viðbragðsáætlunina þar sem segir: Óvissustig – líkur á eldgosi undir Vatnajökli,“ segir í tilkynningu lögregluembættisins á Facebook þar sem frá þessu er greint.

Segir þar að viðbragðsáætlunin sé fyrst og fremst virkjuð til að viðbragðsaðilar fái tækifæri til að undirbúa sig og rifja upp áætlunina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert