Tilkynnir ákvörðun sína „þegar þar að kemur“

Guðlaugur Þór hefur verið orðaður við formannsframboð.
Guðlaugur Þór hefur verið orðaður við formannsframboð. mbl.is/Eyþór

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að hann muni tilkynna ákvörðun sína um það hvort hann bjóði sig fram til formennsku í Sjálfstæðisflokknum „þegar þar að kemur.“

Þetta segir hann í samtali við mbl.is.

Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ákvað á fundi sínum í gær að breyta ekki dagsetningu landsfundar flokksins. Fer hann því fram dagana 28. febrúar til 2. mars í Laugardalshöllinni.

Guðlaugur Þór er einn af þeim sem hafa verið orðaðir við framboð á komandi landsfundi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert