Búið að opna Holtavörðuheiði

Holtavörðuheiðin var opnuð á ný á ellefta tímanum. Mynd úr …
Holtavörðuheiðin var opnuð á ný á ellefta tímanum. Mynd úr safni. mbl.is/Björn Jóhann

Vegurinn um Holtavörðuheiði var opnaður á ný nú á ellefta tímanum en honum var lokað í nótt vegna mikils vatnsaga auk þess sem nokkur umferðaróhöpp urðu á heiðinni.

Á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is, segir að vegurinn sé lokaður yfir Ferjukotssíki í Borgarfirði þar sem brúin hafi skemmst vegna vatnavaxta.

Vegagerðin vekur athygli á því að eftir miklar hitabreytingar undanfarna daga hafi myndast mjög slæmar holur á mörgum stöðum. Vegfarendur eru beðnir um að hafa það í huga og aka varlega en unnið er við viðgerðir eins hratt og hægt er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert