Fyrstu störf Eyjólfs G. Guðmundssonar hjá Pósti og síma fyrir um 51 ári fólust í að flokka bréf í pósthólf fyrirtækja og einstaklinga í Pósthúsinu í Pósthússtræti, en hann hefur lagt mikið af mörkum í þróun tæknimála Póstsins. „Langskemmtilegast hefur verið að taka þátt í nýjungum, þróa nýja þjónustu.“
Hjónin Eyjólfur og Nanna Katrín Guðmundsdóttir eiga tvær dætur og tvö barnabörn. Hann var áður í tónlistarnámi og kenndi um tíma á klassískan gítar í Tónskóla Sigurjóns D. Kristinssonar, var í bílskúrsböndum og byrjaði aftur að spila um fimmtugt, m.a. í hljómsveitunum Suðursveit og Nátttröllum. „Það tók sig upp gamalt bros,“ segir hann og boðar frekari útgáfu.
Í ársbyrjun 1974 tók Eyjólfur, sem nú er teymisstjóri viðskiptakerfa hjá Póstinum, sér frí frá menntaskólanámi og byrjaði að vinna hjá Pósti og síma, ætlaði sér að vera til hausts og halda þá áfram námi. „Starfslokin frestuðust um eitt ár og svo aftur um eitt ár og síðan hafa þau ekki verið á dagskrá, þótt það styttist í að ég hætti vegna aldurs.“
Fyrstu skrefin í pósthúsinu voru ekki auðveld. „Mér gekk frekar illa að muna hver væri í hvaða hólfi og þurfti gjarnan að spyrja yfirmanninn um eitt fyrirtæki. „Mundu bara eftir appelsínunum í þessu hólfi,“ sagði hann, en viðkomandi fyrirtæki flutti inn ávexti og ég gleymdi því ekki eftir þessa tengingu.“
Eyjólfur fór í Póstskólann á vinnutíma. Fræðslan fólst í bóklegu námi og vinnu á ýmsum deildum og vinnslustöðum fyrirtækisins. Þannig kynntist hann starfseminni vel. 1982 hóf hann störf við innheimtu og gíróbókhald á Póstgíróstofunni í Ármúla.
Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu sem kom út mánudaginn 14. janúar.