Búa sig undir verkfallsaðgerðir

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn undirbúa verkfall.
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn undirbúa verkfall. Morgunblaðið/Eggert

„Vonandi koma þeir að borðinu með eitthvað sem hægt er að nota. Við erum búin að standa í þessu samtali í 14 mánuði,“ segir Bjarni Ingimarsson, formaður Lands­sam­bands slökkviliðs- og sjúkra­flutn­inga­manna (LSS).

Hvorki hefur gengið né rekið í kjaraviðræðum félagsins við sveitarfélögin og ríkið. Fundur hefur verið boðaður í deilunni í næstu viku hjá ríkissáttasemjara.

Kjararáð LSS samþykkti á þriðjudag að hefja undirbúning verkfalls. Bjarni kveðst binda vonir við að kosið verði um verkfallsboðun um helgina og verði það samþykkt mun verkfallið hefjast 10. febrúar næstkomandi. Félagsfundur verður hjá LSS í dag þar sem kjaramál verða til umræðu.

Bjarni segir að slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn séu skynsöm stétt og því muni mögulegt verkfall ekki bitna á mikilvægustu verkefnum félagsmanna. „En verkfall myndi vissulega hafa áhrif. Það gerði það klárlega árið 2010 þegar við fórum í verkfall,“ segir hann.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert