Dagur sat sinn síðasta borgarráðsfund

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, segist stíga …
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, segist stíga stoltur og angurvær frá borði borgarstjórnar. mbl.is/Árni Sæberg

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, sat í dag sinn síðasta borgarráðsfund. 22 ár eru síðan hann var kosinn í fyrsta skipti inn í borgarráð sem aðalmaður, þar sem hann hefur setið sem aðalmaður, formaður eða borgarstjóri óslitið allar götur síðan.

Þetta kemur fram í færslu sem Dagur birti á Facebook í dag, þar sem hann nýtti einnig tækifærið til að kveðja samstarfsfólk sitt í borginni.

„Á afmælisdaginn minn, 19. júní 2003, var þessi alvarlegi gaur til vinstri - ég - kosinn í fyrsta skipti inn í borgaráð sem aðalmaður. Þetta reyndist frábært tækifæri því í gegnum fundi borgarráðs er hægt að öðlast yfirsýn og innsýn í öll málefni borgarinnar og tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun hennar og allar lykilákvarðanir,“ skrifar Dagur og vísar í mynd af sér frá því fyrir 22 árum, sem fylgir með færslunni.

Stígur stoltur og angurvær frá borði

Hann segir ekki þurfa að hafa mörg orð um það að Reykjavík hafi tekið algjörum stakkaskiptum á þessum tíma og eflst, hvert og hvar sem litið sé. Um það hafi hann reyndar skrifað heila bók, Nýju Reykjavík, en ætli ekki að orðlengja sig í þessari færslu.

„Ég vil hins vegar þakka öllu mínu frábæra samstarfsfólki í borgarráði gegnum árin kærlega fyrir einstakt samstarf. Og þar geri ég ekki greinarmun á borgarfulltrúum, hinu einstaka starfsfólki borgarinnar og borgarráðs eða ótölulegum fjölda samstarfsaðila. Ég stíg stoltur frá borði í borgarráði og angurværi gaurinn - ég - til hægri, þakkar fyrir sig!“

Í lokin tekur Dagur fram að borgarstjórn taki fyrir lausnarbeiðni hans á þriðjudag vegna fyrirhugaðrar þingsetu.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert