Tæma Árnagarð

Handrit í kössum. Arnar Rúnar Marteinsson lögregluvarðstjóri fremst á myndinni …
Handrit í kössum. Arnar Rúnar Marteinsson lögregluvarðstjóri fremst á myndinni en alls öryggis þurfti að gæta við þessar aðgerðir. Ljósmynd/Sigurður Stefán Jónsson

Flutningi á handritunum úr Árnagarði við Suðurgötu í Reykjavík í Eddu – hús íslenskunnar lauk í gær.

Starfsfólk Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum bar út, undir lögregluvernd, þá tvo dýrgripi sem eftir voru í húsinu, þ.e. Skarðsbók Postulasagna og Króksfjarðarbók Sturlungu; aðalútgáfu þeirrar frægu sögu.

Í Árnagarði voru varðveitt alls um 2.000 handrit, 1.345 fornbréf og um 6.000 fornbréfauppskriftir. Fáein handrit voru flutt í nóvember síðastliðnum vegna sýningarinnar Heimur í orðum sem þá var opnuð á degi íslenskrar tungu í Eddu.

Handritastofnun Íslands eignaðist nokkur handrit nærri árinu 1970 og hafði þá aðsetur í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Starfsemin var flutt í Árnagarð í aðdraganda þess að fyrstu handritin komu frá Kaupmannahöfn skv. samningi milli Íslands og Danmerkur um skiptingu safns Árna Magnússonar. Það var árið 1971.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert