Hefja undirbúning verkfalla

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Trúnaðarmenn Félags framhaldsskólakennara (FF) samþykktu í dag að hefja undirbúning ótímabundinna verkfalla í „ákveðnum fjölda“ framhaldsskóla í næsta mánuði.

Verður efnt til atkvæðagreiðslna þegar friðarskyldu lýkur um mánaðamótin, að því gefnu að kjarasamningar hafi ekki náðst fyrir þann tíma.

Þetta kemur fram í tilkynningu Kennarasambands Íslands að loknum fundi trúnaðarmanna FF í dag.

Verða að standa við samkomulag frá 2016

Ríflega fjörutíu trúnaðarmenn komu saman á fundinum. Lýstu þeir þungu áhyggjum af þeirri pattstöðu sem uppi er í kjaradeilunni.

„Krafa alls félagsfólks KÍ er að kjarasamningar inniberi skuldbindingu launagreiðenda um að staðið verði við samkomulag sem undirritað var í september 2016. Samkvæmt því voru lífeyrisréttindi strax jöfnuð milli opinbers og almenns markaðar en jöfnun launa hefur enn ekki komist til framkvæmda,“ segir í ályktun sem trúnaðarmennirnir samþykktu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert