Ökumaður vörubifreiðar missti stjórn á ökutækinu í glerhálku með þeim afleiðingum að bifreiðin fór yfir á gagnstæðan vegarhelming og út fyrir veg þar sem árekstur varð. Þetta eru niðurstöður rannsóknarnefndar samgönguslysa þar sem fjallað er um banaslys sem varð á Grindavíkurvegi 5. janúar í fyrra.
Fram kemur í skýrslunni að bifreið af gerðinni Toyota Hilux hafi verið ekið suður Grindavíkurveg. Á sama tíma var vörubifreið ekið úr gagnstæðri átt norður Grindavíkurveg.
„Um 550 metra sunnan gatnamóta við Reykjanesbraut missti ökumaður vörubifreiðarinnar stjórn á bifreiðinni í mjúkri vinstri beygju og rann hún yfir á gagnstæðan vegarhelming og út fyrir veginn. Ökumaður Toyota-bifreiðarinnar beygði til hægri og rákust bifreiðarnar saman utan akbrautarinnar. Ökumaður og farþegi Toyota-bifreiðarinnar létust á slysstað. Mikil hálka var á veginum,“ segir í skýrslunni, en atvikið var tilkynnt kl. 11.35.
Fólkið sem lést voru 65 ára gamall karlmaður og 63 ára gömul kona. Fram kemur í skýrslunni að ekkert hafi fundist við skoðun á bifreið þeirra sem gæti skýrt orsök slyssins.
Sömu sögu er að segja við skoðun á vörubifreiðinni. Þá segir að samkvæmt ökurita vörubifreiðarinnar hafi henni verið ekið á 89-90 km/klst. þegar slysið varð.
Samkvæmt vitnisburði ökumanns vörubifreiðarinnar kvaðst hann hafa verið á leið úr Grindavík eftir að hafa losað steinsteypu úr bifreiðinni og verið á leið að Reykjanesbraut. Þegar hann var í vinstri beygju skömmu fyrir hringtorg við Reykjanesbraut hafi hann ætlað að hægja á ferðinni en þá hafi hann misst stjórn á bifreiðinni, farið yfir á gagnstæða akrein og út fyrir veg.
Í skýrslu nefndarinnar segir að Grindavíkurvegur hafi verið hálkuvarinn um kl. 7.00 að morgni 5. janúar 2024. Í þeirri aðgerð var eystri akrein vegarins við slysstað, fyrir umferð til norðurs að Reykjanesbraut, ekki hálkuvarin.
Seinni hálkuvörn um morguninn tafðist en bilun var í saltbifreið sem var kölluð út kl. 10.08 um morguninn til hálkuvarna og var hún ekki tilbúin í hálkuvörn á Grindavíkurvegi fyrr en eftir að slysið varð.
Þá segir í skýrslunni að ökumaður vörubifreiðarinnar hafi ekið bifreiðinni rétt undir þeim hámarkshraða sem tilgreindur er á veginum. Sá hraði gildi við góðar aðstæður en ökumenn þurfi að aka hægar þegar aðstæður eru slæmar.
Í lok skýrslunnar eru settar fram mikilvægar ábendingar.
„Hálka getur myndast á vegi á nokkuð mismunandi máta. Daginn sem slysið varð hafði hitastig verið við frostmark snemma morguns en var komið í 1°C um það leyti sem slysið varð. Einnig mældist mismunandi yfirborðsástand á Grindavíkurveginum milli 10:08 og 10:30 um morguninn meðal annars bleyta en auk þess krapi og snjóþekja. Í tilvikum bleytu getur myndast mikil hálka á vegyfirborði þegar veghiti er undir frostmarki. Ísing sem þessi getur líkst blautum vegi, en myndar spegilsléttan og nærri ósýnilega þekju á yfirborðinu og því getur verið erfitt fyrir ökumenn að átta sig á aðstæðum. Slíkur ís á vegum er oft kallaður glerhálka eða glæra.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hvetur ökumenn til þess að vera vakandi fyrir hálku og við hvaða aðstæður hún myndast helst. Ökumenn ættu að vera sérstaklega á varðbergi þegar lofthiti er undir 4°C og vegur virðist blautur.“