Erlend kona varð innlyksa í sumarbústaði í Ölfusi eftir að Ölfusá flæddi yfir bakka sína. Björgunarsveitarmenn fóru í morgun á báti og sigldu yfir tún til þess að koma konunni til bjargar.
Þetta segir Leó Snær Róbertsson hjá Björgunarfélagi Árborgar í samtali við mbl.is.
Bærinn heitir Egilsstaðir og vegurinn að bústaðnum heitir Arnarbælisvegur.
„Hann [bústaðurinn] var orðinn algjörlega umlukinn vatni. Bústaðurinn í raun stendur á einhverjum smá hól og allt í kringum þennan hól var orðið fullt af vatni. Þegar við vorum að hoppa úr bátnum, ofan á það sem við héldum að ætti að vera vegur eða tún, vorum við með vatn upp á brjóstkassa og rúmlega það,“ segir Leó.
Hann segir að útkallið hafi borist á ellefta tímanum í morgun og fóru fimm björgunarsveitarmenn á vettvang.
„Við fórum á tveimur jeppum til þess eiga þann möguleika inni að geta keyrt alla leið að henni ef svo hefði verið mögulegt en þegar við komum á staðinn var það útilokað mál. Þannig við sigldum á bát yfir einhver tún og vegi,“ segir Leó.
Sums staðar var grunnt og þá þurftu menn að hoppa út úr gúmmíbjörgunarbátnum og vaða.
Leó segir að þeir hafi komið að bústaðnum og klætt konuna í björgunarvesti.
„Hún kemur svo með okkur í bátinn og við vöðum með hana eitthvað og siglum svo til baka,“ segir Leó.
Hann hefur verið í björgunarsveitinni í sjö ár og man ekki eftir öðru eins útkalli. Hann segir þó að reynsluboltar muni eftir svona útköllum frá fyrri tíð.
Kristbjörg Eyvindsdóttir, bóndi á bænum Grænhóli í Ölfusi, sá björgunina.
„Hún kom frá Bandaríkjunum um nóttina, lagði sig og vaknaði upp við þetta,“ segir Kristbjörg.
Grænhóll er eins og nafnið gefur til kynna uppi á hól. Hefur vatnið því enn ekki flætt upp að bænum.
Kristbjörg segir þó að vatnið hafi flætt yfir fleiri hundruð hektara.
„Áin flæðir yfir fleiri, fleiri kílómetra og það eru bæir á Arnarbælistorfu sem eru umflotnir,“ segir hún.
Kristbjörg segir að hún hafi ekki séð annað eins magn af vatni í marga áratugi.
„Við höfum ekki séð þetta svona frá 1983, þá kom mjög stórt flóð. En svo hefur fullt af fólki sem er tengt svæðinu komið og skoðað, og það man eftir alls konar flóðum,“ segir hún.