Kviknaði í gardínu út frá eldi í kerti

Eldur kom upp í íbúð í Háaleitishverfinu í gærkvöld.
Eldur kom upp í íbúð í Háaleitishverfinu í gærkvöld. mbl.is/Eyþór

Eldur kviknaði í íbúð í Háaleitishverfi í gærkvöld og fór dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins á vettvang.

Íbúum tókst að slökkva eldinn áður en slökkvilið kom á staðinn en kviknað hafði í gardínu út frá kerti. Íbúðin var reykræst og engar skemmdir urðu á henni að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Þetta var eina útkall dælubíla slökkviliðsins í gærkvöld og í nótt en töluvert var um sjúkraflutninga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert