Björgunarsveitir í Neskaupstað og á Seyðisfirði undirbúa nú rýmingu svæða vegna yfirvofandi snjóflóðahættu.
Óvissustigi almannavarna var lýst yfir klukkan 12 á hádegi vegna snjóflóðahættu en klukkan 18 taka rýmingar gildi á íbúðarsvæði og í atvinnuhúsnæði í bæjunum tveimur.
Fjöldahjálparstöðvar voru opnaðar í Egilsbúð í Neskaupstað og í Herðubreið á Seyðisfirði klukkan 13 í dag.