Halla klár í slaginn

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. mbl.is/Kristinn Magnússon

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hyggst bjóða sig fram sem áframhaldandi formaður félagsins en auglýst hefur verið eftir einstaklingsframboðum til formanns og í stjórn VR.

Halla var varaformaður félagsins í tæp tvö ár áður en hún tók við sem formaður í byrjun desember eftir að Ragnar Þór Ingólfsson var kjörinn á þing fyrir Flokk fólksins.

Tilbúin í slaginn

„Ég ætla að gefa kost á mér áfram,“ segir Halla í samtali við mbl.is

Aðspurð segist hún ekki viss um hvort mikil samkeppni verði um formannssætið. VR sé stórt félag þar sem starfi margt fært og hæft fólk.

„Ég er bara tilbúin í slaginn ef til þess kemur.“

Mörg verkefni á borði

Þá segir formaðurinn félagið vera að vinna í mjög stórum verkefnum þessa stundina. Félagið sé að fylgja eftir kjarasamningum sem voru gerðir á grundvelli loforða um að hið opinbera myndi halda í sér í gjaldskrárhækkunum og að atvinnurekendur myndu halda aftur af verðhækkunum.

Það hafi átt að skila sér í lægri vöxtum sem Halla segir að sé enn ekki orðin raunin.

„Þetta er svona stóra kjaramálið núna. Það er ekki hægt að búa áfram við þessa hávaxtastefnu.“

Hún segir það nátengt húsnæðismálum sem VR hafi sett á oddinn.

Mannréttindi í forgrunni

„Ég mun halda áfram að berjast af alefli fyrir því að hér verði til húsnæði fyrir það fólk sem býr í landinu og að það verði ekki öðru fremur tekjulind fyrir fáa heldur að mannréttindin um að eiga þak yfir höfuð séu í forgrunni.“

Þá nefnir hún einnig að mörg ýmis mál séu á borði félagsins sem tengist almennt skipulegu starfi stéttarfélaga.

„Ein af stórum ástæðunum fyrir því að við búum við nokkuð góð lífsgæði á Íslandi er að hér er öflug verkalýðshreyfing og það viljum við hafa áfram.

Yfirlýsing Höllu

Halla hefur gefið frá sér yfirlýsingu um framboð til formanns VR og mun hún birtast í heild sinni hér að neðan: 

Kjörstjórn VR hefur nú auglýst eftir framboðum til formanns og stjórnar félagsins og munu kosningar fara fram í mars. Ég gef kost á mér til áframhaldandi setu sem formaður VR og vona að ég hljóti til þess brautargengi frá félagsfólki.

Ég var kjörin í stjórn VR fyrir tveimur árum, gegndi síðan embætti varaformanns og tók við formennsku VR í lok síðasta árs. Í starfi innan stjórnar VR hef ég beitt mér fyrir aukinni þekkingu og slagkrafti í umræðu um efnahagsmál, enda hafa þau gríðarleg áhrif á kjör launafólks. Ég hef sérstaklega gagnrýnt hávaxtastefnuna, sem hefur þegar kostað félagsfólk VR á bæði eigna- og leigumarkaði háar fjárhæðir, og hina viðvarandi tilhneigingu til að kjarabætur séu teknar til baka í gegnum verðhækkanir, gjöld og þjónustuskerðingu. Sem dæmi má nefna að ég hef undir höndum bréf frá banka þar sem lántakanda er tilkynnt um 172 þúsund króna hækkun á mánaðarlegri greiðslubyrði af heimili fyrir fjögurra manna fjölskyldu, á sama tíma og við þurfum öll að borga meira fyrir mat, rafmagn, tryggingar og opinbera þjónustu, svo fátt eitt sé nefnt.

Ég hef einnig tekið kjör barnafjölskyldna föstum tökum og hafði frumkvæði að málefna- og stefnumótunarvinnu um kjör og stöðu foreldra ungra barna innan VR, þar sem sýnt var fram á að tekjuskerðing foreldra ungra barna vegna fæðingarorlofs og umönnunarbils hleypur hæglega á milljónum króna. Við í VR höfum gagnrýnt harðlega hækkanir á leikskólagjöldum í nokkrum sveitarfélögum og ég lagði mín lóð á vogarskálarnar til að tryggja gjaldfrjálsar skólamáltíðir í tengslum við síðustu kjarasamninga. Loks vil ég að VR taki upp stuðning við nýbakaða foreldra, sem fjölmörg stéttarfélög bjóða nú þegar, til að létta á fjárhagsáhyggjum á viðkvæmum tíma í lífi bæði foreldra og barns.

VR stendur frammi fyrir flóknum viðfangsefnum á næstu misserum. Áhætta var tekin með því að undirrita kjarasamninga til lengri tíma í umhverfi verðbólgu og ofurvaxta. Launafólk er orðið langeygt eftir raunverulegum vaxtalækkunum og langþreytt á dýrtíð. Það er tímabært að atvinnurekendur og stjórnvöld axli sína ábyrgð á stöðunni. Við höfum greitt fyrir þetta efnahagsástand alltof dýru verði á meðan bankastofnanir og fjármagnseigendur græða á tá og fingri. Á sama tíma er gerð atlaga að skipulagðri baráttu launafólks, til dæmis með stofnun gervistéttarfélaga og beitingu verkbannsvopnsins án ábyrgðar, sem og órökstuddum hugmyndum um að auka valdheimildir ríkissáttasemjara. Sporin hræða og í löndum þar sem verkalýðshreyfingin hefur verið brotin á bak aftur með þessum hætti býr vinnandi fólk við mun lakari kjör, afkomuóöryggi og jafnvel fátækt þrátt fyrir fulla vinnu.

➔ Við verðum að halda bæði stjórnvöldum og atvinnurekendum við efnið og tryggja að vextir lækki og verðhækkanir séu stöðvaðar. Ákvarðanir í efnahagsmálum sem varða okkur öll eiga ekki að vera teknar á grunni gróðahyggju eða úreltra hagfræðikenninga.

➔ Við verðum að ráðast til atlögu við húsnæðiskrísuna og tryggja að allt vinnandi fólk geti átt öruggt heimili á viðráðanlegum kjörum.

➔ Við verðum að standa vörð um og efla verkalýðshreyfinguna og VR gegnir þar lykilhlutverki sem stærsta stéttarfélag landsins.

VR félagar vinna bæði fjölbreytt og verðmæt störf og halda uppi litlum sem stórum fyrirtækjum á almennum markaði. Hluti VR-inga starfar eftir töxtum og grunntímakaup hefur ekki hækkað sem skyldi. Meirihluti félagsfólks VR semur sjálft um kjör sín en nýtur stuðnings af almennum kjarasamningum og þeim hækkunum og réttindum sem þar er samið um. Allir VR félagar eiga það sameiginlegt að njóta góðs af því að tilheyra stóru og öflugu félagi sem veitir fyrirtaks þjónustu og berst fyrir þeirra kjörum og hagsmunum. Þá baráttu vil ég gjarnan leiða.

Ég hef starfað innan verkalýðshreyfingarinnar í fimm ár og bý yfir fjölbreyttri reynslu af bæði vinnumarkaði og félagsstörfum. Ég hef starfað sem sérfræðingur, skrifstofukona, framkvæmdastjóri, aðstoðarmaður ráðherra, blaðamaður, verkefnastjóri, lagerstarfsmaður, fótboltaþjálfari, millistjórnandi og afgreiðslukona. Ég hef alla tíð verið virk í félagsstörfum og á mér óteljandi áhugamál. Ég bý í Reykjavík með fjölskyldunni minni en hjarta mitt býr líka að hluta til í London og að hluta á Austfjörðum.

Ég óska eftir stuðningi VR félaga til að halda áfram að leiða félagið, enda er ég rétt að byrja!

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR

Fréttin hefur verið uppfærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert