Vilja rannsókn og að FS verði dregið til ábyrgðar

Leikskólinn Mánagarður er á Stúdentagörðunum við Eggertsgötu.
Leikskólinn Mánagarður er á Stúdentagörðunum við Eggertsgötu. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Foreldrar þriggja ára stúlku sem veiktist alvarlega af E. coli-sýkingu á leikskólanum Mánagarði í október krefjast rannsóknar lögreglu fyrir hönd dóttur sinnar vegna þess líkamstjóns sem hún varð fyrir út af sýkingunni.

Kæra foreldrarnir Félagsstofnun stúdenta, sem er rekstraraðili leikskólans, jafnframt fyrir brot starfsmanna leikskólans fyrir að hafa ekki gætt að réttri aðferð við framleiðslu, geymslu og dreifingu matvæla á leikskólanum.

Fjallað var ítarlega um mál stúlkunnar, Matthildar Gísladóttur, í Kveik á Rúv í vikunni. Hún var meðal þeirra 45 barna af leikskólanum sem leituðu til bráðamóttöku eftir að þau fundu fyrir einkennum af E. coli eftir að hafa neytt kjöthakks á leikskólanum.

Af börnunum 45 voru 12 lögð inn á Landspítalann, fimm börn þurftu að leggjast á gjörgæslu og tvö þurftu skilunarmeðferð vegna nýrnabilunar, en Matthildur var önnur þeirra.

Líkt og kom fram í Kveiksþættinum var Matthildi haldið sofandi í viku tíma á spítalanum eftir að veikindi hennar ágerðust, en þá var hún komin með HUS-sjúkdóminn sem felur í sér að blóðtappar eru farnir að myndast í líkamanum. Hætti nýrnastarfsemi hennar alfarið á þessu tímabili, en hún fór síðar að taka við sér. Eru nýru Matthildar nú með innan við helmingsstarfsemi.

Í heild dvaldi Matthildur í 52 daga á spítalanum, þar af í 23 daga á gjörgæslu.

Í umfjöllun Kveiks um málið kom fram að FS hefði viðurkennt mistök og að tryggingafélag félagsins hefði viðurkennt bótaskyldu í málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert