Afleit aðstaða varðar þjóðaröryggi

Starfsmenn hafa frá því í maí á seinasta ári sinnt …
Starfsmenn hafa frá því í maí á seinasta ári sinnt neyðaröryggisþjónustu á efstu hæðinni í Skógarhlíð 14 þar sem áður var matsalur. mbl.is/Karítas

Mikil og brýn þörf er á úrbótum í húsnæðismálum viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæði viðbragðs- og björgunaraðila í Skógarhlíð 14 var þegar orðið of þröngt og óhentugt fyrir starfsemina þegar í ljós kom mygla í kjallara byggingarinnar og víðar í húsnæðinu í fyrravetur svo grípa þurfti til tafarlausra aðgerða og voru einstakar starfseiningar á hrakhólum.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Samhæfingar- og stjórnstöð almannavarna (SST) voru fluttar til bráðabirgða á Laugaveg 166, í Víðishúsið svokallaða, sl. sumar og eru þar enn.

Komið fyrir í matsalnum

Að sögn Jóns Svanbergs Hjartarsonar, framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar, þurfti í maí í fyrra að ráðast í neyðarflutning vaktstofanna sem voru í kjallararýminu og sinna sólarhringsvöktun, þ.e.a.s. neyðarsvörun Neyðarlínunnar 112, Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra og Vaktstöð siglinga/Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, upp á efstu hæð byggingarinnar við Skógarhlíð.

Var Neyðarlínunni og Fjarskiptamiðstöðinni þar komið fyrir í matsalnum en vaktstöð Gæslunnar er í afmörkuðu rými á sömu hæð. Mötuneytinu var lokað og fær starfsfólk Björgunarmiðstöðvarinnar sendan mat á bökkum utan úr bæ. Vinnurýmið á efstu hæð er afar þröngt og óhentugt og segir Jón Svanberg að um algjört neyðarúrræði sé að ræða og ekki hugsað til langframa.

Sitt á hvorum staðnum

Fyrst og fremst varðar þetta ástand öryggi neyðarþjónustu og almannavarna á landinu. Nálægð starfsstöðva viðbragðsaðila, samvinna þeirra og samþætting starfseminnar getur skipt sköpum á neyðarstundum. „Stóra ógnunin í þessu er sú að ef það kemur upp brátt neyðarástand þar sem virkja þarf samhæfingarstöðina, þá er hún ekki á sama stað og þeir sem þurfa að sinna fyrsta viðbragðinu. Það er mjög bagalegt og í rauninni þjóðaröryggismál svo maður tali hreint út,“ segir hann. „Það skiptir líka miklu máli að þegar menn fara svona sitt í hvora áttina þá dofna tengslin sem gerir einnig að verkum að allt verður þyngra í vöfum,“ segir hann.

Umfjöllunina má nálgast í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Jón Svanberg óttast að uppbyggingarstarf sl. 30 ára renni út …
Jón Svanberg óttast að uppbyggingarstarf sl. 30 ára renni út í sandinn. „Verkefnin og náttúran munu allavega ekki laga sig að því.“
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert