Ellert B. Schram, fv. ritstjóri og þingmaður, lést í nótt, 85 ára að aldri.
Ellert fæddist í Reykjavík 10. október 1939. Foreldrar hans voru Björgvin Schram, stórkaupmaður í Reykjavík, og Aldís Þorbjörg Brynjólfsdóttir húsmóðir.
Ellert lauk embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1966 og öðlaðist hann lögmannsréttindi sama ár. Ellert var blaðamaður á Vísi, vann á málflutningsskrifstofu Eyjólfs K. Jónssonar og fleiri 1965 og 1966, var skrifstofustjóri borgarverkfræðings 1966-71, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins 1971-79 og 1983-87, alþingismaður Samfylkingarinnar 2007-2009 og hefur verið varaþingmaður, síðast árið 2019. Hann var ritstjóri Vísis og DV 1980-95, formaður KSÍ 1973-89, forseti ÍSÍ 1991-97 og forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, ÍSÍ, 1997-2006.
Ellert var formaður Íslenskrar getspár, ritstjóri KR-blaðsins, Úlfljóts, Stefnis og bókarinnar KR, Fyrstu hundrað árin, sem var samin og útgefin í tilefni aldarafmælis KR 1999.
Hann var Formaður Stúdentaráðs HÍ, formaður SUS 1969-73, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, sat í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1969-73 og 1978-81, í Rannsóknarráði ríkisins 1971-80, var fulltrúi Alþingis á allsherjarþingi Sþ 1972, sat á þingi Alþjóðaþingmannasamtakanna 1971-79, var fulltrúi Íslands í þingmannanefnd EFTA 1983, sat í Útvarpsráði 1975-83 og fulltrúi Alþingis hjá Evrópuráðinu 2007-2008. Ellert sat í stjórn Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA) 1982-86 og 1990-94, var einn af varaforsetum UEFA 1984-86 og gegndi áhrifastörfum fyrir UEFA allt til 2010.
Ellert var Íslandsmeistari í fótbolta með KR 1959, 1961, 1963, 1965 og 1968, og bikarmeistari 1960, 1961, 1962, 1963, 1964, 1966 og 1967. Hann var lengi markahæsti KR-ingur frá stofnun félagsins, eða allt til 2019 er Óskar Örn Hauksson sló metið.
Ellert lék 23 landsleiki 1959-70, var sæmdur titlinum knattspyrnumaður ársins, 1965, 1969, 1970 og 1971, sat í stjórn knattspyrnudeildar KR 1960-69 og var formaður síðustu tvö árin. Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu og gullmerki KR, var heiðursformaður KSÍ, heiðursforseti ÍSÍ og heiðursfélagi KR síðan 2019.
Ellert skrifaði einnig bækurnar Eins og fólk er flest, safn greina og smásagna, árið 1991, og Á undan sinni samtíð, sem kom út 2006. Árið 2020 komu endurminningar hans út á bók er nefndist Ellert – Endurminningar Ellerts B. Schram
Eftirlifandi eiginkona Ellerts er Ágústa Jóhannsdóttir. framhaldsskólakennari, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur. Börn þeirra eru Eva Þorbjörg og Ellert Björgvin. Með fyrri eiginkonu, Önnu G. Ásgeirsdóttur, átti Ellert börnin Ásdísi Björgu, Örnu, d. 2022, Aldísi Brynju og Höskuld Kára. Sonur Ellerts og Ásdísar Þórðardóttur er Arnar Þór Jónsson, ættleiddur.