Áréttað: Ekki sakaður um að villa á sér heimildir

Hjúkrunarheimilið Berg í Bolungarvík.
Hjúkrunarheimilið Berg í Bolungarvík.

Leik­skóla­stjór­inn sem fjallað var um á forsíðu Morg­un­blaðsins í dag er ekki bakvörður­inn sem sakaður var um að hafa villt á sér heim­ild­ir á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík í kór­ónu­veirufar­aldr­in­um.

Í um­fjöll­un Morg­un­blaðsins í morg­un kem­ur fram að leik­skóla­stjór­inn hafi kom­ist í frétt­ir árið 2020 þegar hann starfaði sem bakvörður á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík.

Um­fjöll­un­in var birt á mbl.is þar sem fyr­ir mis­tök var hlekkjað í frétt um ann­an bakvörð sem starfaði á sama hjúkr­un­ar­heim­ili og var sakaður um að hafa villt á sér heim­ild­ir og falsað skjöl um mennt­un og starfs­leyfi sem sjúkra­liði. Beðist er vel­v­irðing­ar á því.

Ákvörðun land­lækn­is ekki tek­in á rétt­um laga­grund­velli

Þær frétt­ir um leik­skóla­stjór­ann sem vísað var til í Morg­un­blaðinu í dag varða aft­ur á móti synj­un embætt­is land­lækn­is á leyf­is­bréfi sem leik­skóla­stjór­inn sótti um þegar hann starfaði á hjúkr­un­ar­heim­il­inu í kór­ónu­veirufar­aldr­in­um.

Leik­skóla­stjór­inn út­skrifaðist sem sjúkra­liði 2007 en land­lækn­ir synjaði hon­um um starfs­leyfi á grund­velli þess að hann hefði ekki viðhaldið kunn­áttu sinni frá út­skrift með því að vinna sem sjúkra­liði frá því nám­inu lauk.

Heil­brigðisráðuneytið komst síðar að því að ákvörðun land­lækn­is hefði ekki verið tek­in á rétt­um laga­grund­velli.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert