„Þessi krafa stendur enn óhögguð“

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Kennarar segja viðhorf launagreiðenda í kjaraviðræðum ekki aðeins birtast sem virðingarleysi við kennarastéttina í heild, heldur einnig sem virðingarleysi við hlutverk kennarastéttarinnar. Krafa kennara um samkomulag frá árinu 2016, um jöfnun launa, stendur óhögguð.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem samninganefndir allra aðildarfélaga Kennarasambands Íslands sendu frá sér fyrir skömmu. Samninganefndirnar funduðu í dag til að fara yfir stöðuna í kjaradeilunni, sem er öll í hnút. 

Skora á ríkisstjórnina að standa við loforð

Lýsa kennarar yfir miklum vonbrigðum með stöðuna í viðræðunum við ríki og sveitarfélög og skora á ríkisstjórnina að standa við orð sín í aðdraganda kosninga og leiða leiða deiluna til lykta.​

„Skýrar vísbendingar liggja fyrir um kerfislægan og ómálefnalegan mun á launum sérfræðinga í fræðslustarfsemi á opinberum markaði og sérfræðinga á almennum markaði. Í samkomulagi frá 2016 liggja fyrir loforð opinberra launagreiðenda um að jafna þennan mun á 6 til 10 árum,“ segir í ályktuninni. 

Viðhorfið birtist sem virðingarleysi

Samninganefndir allra aðildarfélaga hafi lýst því yfir í yfirstandandi kjaraviðræðum að það væri algjört forgangsatriði að við þetta yrði staðið. 

„Þannig verði kjarasamningar allra félaga að innibera skuldbindingu launagreiðenda og áætlun um hvernig jöfnun launa skuli náð á næstu árum. Þessi krafa stendur enn óhögguð,“ ​segir þar einnig.

„Viðhorf launagreiðenda í kjaraviðræðunum birtist ekki aðeins sem virðingarleysi við kennarastéttina í heild heldur einnig sem virðingarleysi við hlutverk kennarastéttarinnar sem er að tryggja börnum okkar bestu menntun sem völ er á."

Segir kennara þurfa að slá af kröfum sínum

Inga Rún Ólafs­dótt­ir, formaður samn­inga­nefnd­ar Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga, sagði í sam­tali við mbl.is í gær að viðhorfs­breyt­ingu þyrfti hjá kenn­ur­um til að hægt væri að setj­ast aft­ur að samn­inga­borðinu.

Sveit­ar­fé­lög­in hefðu teygt sig eins langt og þau gætu til að koma til móts við kenn­ara, en þeir yrðu að slá af launakröf­um sín­um ættu samn­ing­ar að nást.

Síðasti fund­ur samn­inga­nefnd­a kennara, ríkis og sveitarfélaga var á miðviku­dag og var þá reynt til þraut­ar að finna ein­hvern grund­völl til frek­ara sam­tals. Rík­is­sátta­semj­ari sagði það ekki hafa tek­ist og því sæi hann ekki til­efni til að boða til fund­ar að svo stöddu.

Að öllu óbreyttu hefjast verkfallsaðgerðir kennara á ný mánudaginn 3. febrúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert