Varað við hálku víða um landið

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Þorgeir

Hálka er á öllum helstu vegum höfuðborgarsvæðisins. Þá er snjóþekja eða krapi og snjókoma mjög víða á Suðvesturlandi, t.d. á Hellisheiði, Þrengslum og Mosfellsheiði.

Þæfingsfærð er á Krýsuvíkurvegi og Bláfjallavegi.

Á Suðurlandi er snjóþekja eða hálka á öllum helstu leiðum en unnið er að mokstri.  þæfingsfærð er á flestum útvegum.

Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is.

Hálka og skafrenningur

Á Vesturlandi er varað við snóþekju á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku, Vatnaleið og víðar, en hálka eða hálkublettir eru á nokkrum leiðum.

Á Vestfjörðum er varað við hálku eða hálkublettum á mörgum leiðum.

Á Norðurlandi er snjóþekja með éljagangi víða en hálka á stöku stað. Hálka er víða með skafrenningi eða éljagangi á Norðausturlandi. Á Hólasandi er þæfingur en unnið er að mokstri.

Vara við flughálku

Á Austurlandi er flughálka á Heiðarenda, Upphéraðsvegi, Skriðdals og Breiðdalsvegi. 

Krapi er á Fagradal og Fjarðarheiði. Hálka er á nokkrum útvegum en greiðfært víða með ströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert