Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir formannsframbjóðandi Sjálfstæðisflokksins segir öfluga mótframbjóðendur koma til greina í formannskjöri á landsfundi flokksins í næsta mánuði.
Áslaug tilkynnti um framboð sitt á fundi í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll í dag en blaðamaður mbl.is ræddi stutt við hana að fundi loknum.
Vonast þú til þess að fá mótframboð?
„Ég vona að flokknum beri gæfa til þess að kjósa öfluga forystu á landsfundi og það verður að koma í ljós hverjir gefi kost á sér í það. Það eru bara öflugir einstaklingar sem koma til greina.“
Kvaðst hún afar þakklát fyrir góða mætingu á fundinn og þann mikla stuðning sem hún finnur fyrir.
„Það skiptir mig máli fyrir næstu vikur og það skiptir ekki Sjálfstæðisflokkinn síst máli að sjá hér fólk á öllum aldri og úr ólíkum fylkingum til að styðja við verkefni framundan sem er að skipa sér undir merkjum sjálfstæðisstefnunnar, þora að líta inn á við gagnvart því hvernig við færum flokkinn inn í framtíðina og ná árangri.“
Margir hafa verið orðaðir við framboð til formennsku flokksins en auk Áslaugar eru það helst Guðlaugur Þór Þórðarson og Guðrún Hafsteinsdóttir þingmenn flokksins en hvorugt þeirra hefur tilkynnt um framboð enn sem komið er.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður flokksins var einnig orðuð við framboð en gaf út yfirlýsingu í vikunni þess efnis að hún hygðist ekki gefa kost á sér.
Hafði hún þó áður gefið út að hún hefði tekið ákvörðun fyrir rúmlega tveimur árum um að hún myndi bjóða sig fram til formennsku í Sjálfstæðisflokknum þegar Bjarni Benediktsson myndi ákveða að hverfa á braut.
Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, greindi frá því í færslu á Facebook fyrir tveimur vikum að hann hygðist bjóða sig fram til formennsku enda væri komið að kynslóðaskiptum og löngu kominn tími á að eldri borgurum væri treyst til að leiða flokkinn inn í framtíðina.
Mátti þó greina ákveðna hæðni í færslunni og því leiða líkur að því að hann væri ekki að bjóða sig fram.
Snorri Ásmundsson, listamaður, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og stofnandi framboðsins Vinstri hægri snú árið 2002, tilkynnti fyrstur um framboð sitt til formannssætisins. Sagði hann Ólaf Thors, fyrrum formann flokksins, og Margaret Thatcher hafa vitjað til sín í draumi og Davíð Oddsson hafa sent sér stuðningsyfirlýsingu í formi hugskeytis.
Á hann þó ekki sæti á landsfundi flokksins eins og sakir standa og því óljóst hvort hann komist á fundinn þar sem kjörið mun fara fram.