„Gildir um Bandaríkin eins og aðra“

„Framtíð Grænlands á að vera í höndum Grænlendinga, eins og …
„Framtíð Grænlands á að vera í höndum Grænlendinga, eins og grænlensk og dönsk stjórnvöld hafa lagt áherslu á,“ segir í svari forsætisráðuneytisins. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/AFP

Afstaða ríkisstjórnarinnar til kröfu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, um yfirráð yfir Grænlandi, er sú að öll ríki verða að virða alþjóðalög og fullveldi ríkja.

Þetta segir í svari forsætisráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is, í tilefni af skyndilegum fundi leiðtoga allra Norðurlandanna utan Íslands í Kaupmannahöfn í gærkvöldi.

Ætla má að krafa Bandaríkjaforseta um yfirráð yfir Grænlandi hafi borið á góma á fundinum.

Framtíð Grænlands á að vera í höndum Grænlendinga

Spurningu um afstöðu íslensku ríkisstjórnarinnar til þess og mögulegra tollaþvingana á hendur Danmörku, svarar forsætisráðuneytið þannig:

„Afstaða ríkisstjórnarinnar til kröfu Trumps um yfirráð yfir Grænlandi er sú að öll ríki verða að virða alþjóðalög og fullveldi ríkja. Það gildir um Bandaríkin eins og aðra.

Framtíð Grænlands á að vera í höndum Grænlendinga, eins og grænlensk og dönsk stjórnvöld hafa lagt áherslu á. Almennt eru íslensk stjórnvöld hlynnt frjálsum viðskiptum og afnámi viðskiptahindrana að því marki sem mögulegt er.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert