Hrina smáskjálfta við Vífilsfell

Vífilsfell. Mynd úr safni.
Vífilsfell. Mynd úr safni. mbl.is/Ómar Óskarsson

Um fjörutíu skjálftar hafa mælst við Vífilsfell síðustu þrjár klukkustundirnar.

Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir hrinuna ekki óalgenga á þessu svæði. Þá sé tekið að draga úr virkninni.

Skjálftarnir eru ekki kraftmiklir en sá stærsti mældist 1,4 að stærð. Flestir eru um eða yfir 0,5 að stærð.

Ekki er búið að fara yfir skjálftana og staðfesta stærð þeirra á vef Veðurstofunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert