Segist bundinn trúnaði um samtalið við Ingu

Ekki hefur náðst í Ingu og skólameistarinn kveðst bundinn trúnaði.
Ekki hefur náðst í Ingu og skólameistarinn kveðst bundinn trúnaði. Samsett mynd/mbl.is/Sigurður Bogi/Eyþór

„Sem skólameistari skólans og með her skjólstæðinga og forráðamenn þeirra hér á snærum, sem hringja um eitt og annað, get ég ekki farið efnislega í slík mál. Hversu furðuleg kannski sem þau geta hljómað og undarleg. Ég er með 1.300 nemendur og 150 starfsmenn.“

Þetta segir Ársæll Guðmundsson skólameistari Borgarholtsskóla í samtali við mbl.is.

Hringdi inn á skiptiborðið

Hann staðfestir að Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hafi hringt inn á skiptiborð skólans og fengið samband við hann.

Hann kveðst þó bundinn trúnaði um efni samtalsins.

Í umfjöllun Vísis um samtalið er haft eftir heimildum að Inga hafi hellt sér yfir skólastjórann og bent honum á áhrif hennar í samfélaginu, vegna þess að barnabarn hennar hefði týnt skópari innan veggja skólans.

mbl.is hefur hvorki náð í Ingu Sæland né aðstoðarmenn hennar vegna málsins.

Mun hafa blöskrað

Samkvæmt heimildum Vísis mun Inga hafa minnst á stöðu sína og tengsl við lögregluna í símtalinu.

„Minnti hún á áhrif sín í samfélaginu og vísaði meðal annars til tengsla við lögregluna í því sambandi. Samkvæmt heimildum fréttastofu blöskraði Ársæli skólastjóra símtalið ef marka má samtöl hans við samkennara og starfsfólk skólans þar sem efni símtalsins kom fram í grófum dráttum eins og rakið hefur verið,“ segir í umfjöllun Vísis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert