Tvö slys urðu um borð í skipum fyrir utan Vestfirði í síðustu viku. Meiðsli á fólki eru ekki talin alvarleg en mildi þykir að ekki hafi farið verr. Þetta kemur fram í yfirferð lögreglunnar á Vestfjörðum á verkefnum síðustu viku.
Slys á skipum eru tíð en rannsóknir sýna fram á að um helmingur sjómanna hafi lent í slysi þegar þeir eru um boð.
„Þetta voru minni háttar slys, vinnuslys. Það voru meiðsli á fólki en þau voru aðeins minni háttar. Þetta voru slys um borð í skipunum, fólk er að detta eða fær yfir sig eitthvað eins og gengur og gerist. Atvikin áttu sér stað úti á sjó og komið var til hafnar með áhafnarmeðlimi sem að höfðu meiðst,“ segir Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, í samtali við mbl.is.
Þetta ásamt öðru kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Vestfjörðum sem birt var fyrr í dag.