Verður ekki í hópi með þeim sem káluðu geirfuglinum

Reynslan sýnir að framkvæmdir á vegum Landsvirkjunar hafa ekki orðið til þess að veikja laxastofna í íslenskum ám heldur þvert á móti. Þetta fullyrðir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.

Segir Náttúrugrið ekki fara með rétt mál

Hann er gestur nýjasta þáttar Spursmála þar sem meðal annars er rætt um gagnrýni náttúruverndarsamtakanna Náttúrugriða en formaður þeirra, Snæbjörn Guðmundsson, var gestur Spursmála nýverið og varaði mjög við fyrirhuguðum framkvæmdum við Hvammsvirkjun sem nú hafa verið stöðvaðar með dómi héraðsdóms.

Niðurstaða dómsins hefur verið mikið til umfjöllunar að undanförnu, meðal annars í fyrrnefndum tveimur viðtölum. Samkvæmt henni hafa íslensk stjórnvöld ekki heimild til þess að gefa út virkjanaleyfi þar sem breytingar verða á svokölluðum vatnshlotum. 

Ekki sammála niðurstöðu dómsins

Landsvirkjun er ósammála niðurstöðu héraðsdóms og hefur skotið málinu til æðra dómsstigs og raunar kallað eftir því að Hæstiréttur Íslands taki málið beint til meðferðar, án viðkomu í Landsrétti.

Hörður segir í viðtalinu að fyrri framkvæmdir í Þjórsá, í Blöndu og Jöklu á Austurlandi hafi ekki leitt af sér hnignun laxastofna í viðkomandi ám, þvert á móti.

Geirfuglshamur í eigu íslenska ríkisins. Fuglinn varð útdauður vegna ofveiði …
Geirfuglshamur í eigu íslenska ríkisins. Fuglinn varð útdauður vegna ofveiði á 19. öld. mbl.is/Eyþór Árnason

Óttast ekki dóm sögunnar

Hann segist því ekki óttast dóm sögunnar vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Þjórsá, né heldur að hann komist í vafasaman hóp þeirra manna sem grönduðu síðustu geirfuglunum hér við land og þar með á heimsvísu.

Viðtalið við Hörð má sjá og heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert