Næstu fundir í kjaradeilu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS), ríkis og sveitarfélaga hafa verið boðaðir hjá ríkissáttasemjara á morgun, þriðjudag.
Um er að ræða tvo fundi, annars vegar með samninganefnd LSS og samninganefnd ríkisins og hins vegar með samninganefndum LSS og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Ríkissáttasemjari segir í samtali mbl.is að viðræður mættu ganga betur, en síðast var fundað í deilunni á miðvikudaginn.
Bjarni Ingimarsson, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, sagði í samtali við mbl.is eftir þann fund að ágætis árangur hefði náðst í að setja markmið um hvert ætti að stefna og hvernig ætti að leysa málin.
Ef samningar nást ekki fyrir 10. febrúar næstkomandi skella á verkföll slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sem starfa hjá sveitarfélögunum.