Lögregla hefur ekki komið sér upp búnaði til að fylgjast með sakborningum sem hafa brotið ítrekað gegn nálgunarbanni.
Sigríðar J. Friðjónsdóttur ríkissaksóknara segir afar mikilvækt að rafrænni vöktun, þ.e. notkun ökklabanda, verði hrint í framkvæmd, bæði hvað varðar nálgunarbann sem og úrræði í stað gæsluvarðhalds eða farbanns.
Vísir greindi fyrst frá málinu.
„Tækjabúnaður lögreglu er á ábyrgð dómsmálaráðherra/ráðuneytis og ríkislögreglustjóri sér um framkvæmdina fyrir hönd ráðherra. Það er afar mikilvægt að rafrænni vöktun/notkun ökklabanda verði hrint í framkvæmd, bæði hvað varðar nálgunarbann og ekki síður sem úrræði í stað gæsluvarðhalds og/eða farbanns,“ segir í svari ríkissaksóknara við fyrirspurn mbl.is.
Embættið gaf út fyrirmæli til lögreglu í febrúar á síðasta ári sem meðal annars fólu í sér að krafa yrði gerð á að sakborningur, sem ítrekað brýtur gegn nálgunarbanni en ekki er talin ástæða til að sæti gæsluvarðhaldi, hafi á sér ökklaband svo unnt sé að fylgjast með ferðum hans.
Í ákvæðum laga um meðferð sakamála segir að ef skilyrði gæsluvarðhalds séu fyrir hendi geti dómari mælt fyrir um vistun sakbornings á sjúkrahúsi eða viðeigandi stofnun, bannað honum brottför af landinu eða lagt fyrir hann að halda sig á ákveðnum stað eða innan ákveðins svæðis í stað þess að úrskurða hann í gæsluvarðhald.
Dómari getur þá krafist þess að sakborningur hafi á sér búnað svo að unnt sé að fylgjast með ferðum hans.